Velkomin á ráðningarvef Veritas
Markmið Veritas er að hjá okkur starfi aðeins bestu starfsmennirnir sem völ er á hverju sinni. Stefnt er að því að þeir séu vel menntaðir, rétt þjálfaðir og hæfir til að sinna starfi sínu af fagmennsku, alúð og ánægju.
Við leggjum áherslu á velferð starfsmanna og höfum gildin okkar, áreiðanleika, framsækni og hreinskiptni í hávegum.
Staðið er faglega að ráðningum og móttöku nýrra starfsmanna, fylgst er með starfsþróun einstaklinga og hlúð að mannauðsbætandi þáttum.
Í ráðningarferlinu er trúnaður í fyrirrúmi og öllum umsækjendum sem sækja um starf er svarað.
Haft er samband við umsækjendur ef tækifæri býðst sem hentar viðkomandi en best er að fylgjast með auglýsingum um laus störf sem birtast neðar á síðunni. Ef ekkert starf er laust, er velkomið að leggja inn almenna umsókn um starf og verður hún vistuð hjá okkur næstu 6 mánuði.